SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR LOKAÐ FRÁ 26. JÚNÍ - 4. JÚLÍ

10.4.2017

Yfirstandandi sýning: 

Í stórbrotnum verkum er sýna menn og dýr á flótta undan náttúruhamförum má skynja innri átök listamannsins sem tengir okkur við líf hans og starf, sælu og þjáningar sem fylgja sköpunarferlinu þar sem slegið er á nýja strengi. Saga fátæks bóndasonar sem verður einn dáðasti listmálari þjóðarinnar er ævintýri líkust. Fjölbreytt efnistök vitna um stöðuga leit listamannsins að tjáningarformi sem hæfði ólíkum viðfangsefnum, allt frá staðbundnum landslagsmyndum til túlkunar á sagnaarfinum, íslenskum þjóðsögum og ævintýrum auk náttúruhamfara. Eldgosamyndirnar svonefndu eru byggðar á frásögnum og eigin reynslu listamannsins þar sem hann gefur okkur hlutdeild í tilveru á mörkum ímyndunar og raunveru sem vitnisburð um að tilveran er fallvölt. 

Á sýningunni má sjá olíumálverk, vatnslitamyndir og teikningar er spanna allan feril listamannsins.

Verkin á sýningunni eru aðgengileg á Sarpur.is

(16.5. - 15.9.) opið  þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga kl. 14 - 17.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)