SUNNUDAGSLEIÐSÖGN: VALTÝR PÉTURSSON

20.9.2016

Dagný Heiðdal, listfræðingur og deildarstjóri listaverkadeildar Listasafns Íslands leiðir gesti um sýninguna VALTÝR PÉTURSSON, sunnudaginn 25. september kl. 14:00. Dagný er sýningarstjóri sýningarinnar.

Valtýr Pétursson (1919−1988) var brautryðjandi abstraktlistar hér á landi, afkastamikill listmálari, mikilvirkur gagnrýnandi og virkur þátttakandi í félagsstarfi listamanna. Sýningunni sem opnar í Listasafni Íslands í september 2016 er ætlað að gefa yfirlit yfir fjölbreyttan listferil Valtýs.

nánar

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)