SUNNUDAGSLEIÐSÖGN: VALTÝR PÉTURSSON

13.10.2016

Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands, leiðir gesti um sýninguna VALTÝR PÉTURSSON, sunnudaginn 16. október kl. 14:00. 

Valtýr Pétursson (1919−1988) var brautryðjandi abstraktlistar hér á landi, afkastamikill listmálari, mikilvirkur gagnrýnandi og virkur þátttakandi í félagsstarfi listamanna. Sýningunni sem opnar í Listasafni Íslands í september 2016 er ætlað að gefa yfirlit yfir fjölbreyttan listferil Valtýs.

nánar um sýninguna

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)