TEXTI: LEIÐSÖGN MEÐ BIRTU GUÐJÓNSDÓTTUR SÝNINGARSTJÓRA

8.12.2016

Birta Guðjónsdóttir sýningarstjóri mun leiða gesti um sýninguna TEXTI – VALIN TEXTAVERK ÚR SAFNI PÉTURS ARASONAR OG RÖGNU RÓBERTSDÓTTUR, sunnudaginn 23. apríl kl. 14.  Pétur hefur, ásamt Rögnu Róbertsdóttur eiginkonu sinni, safnað listaverkum í rúmlega 40 ár, og sett upp fjölda nýrra sýninga og sýninga á verkum úr safneign sinni, m.a. í sýningarrýmum þeirra hjóna í Reykjavík og Berlín. Pétur Arason og Ingólfur Arnarsson ráku sýningarrýmið Önnur hæð  á heimili Péturs og Rögnu á árunum 1992-1997. Árið 2003 stofnuðu Pétur og Ragna SAFN , sem opið var almenningi til ársins 2008. Síðan þá hafa þau rekið samnefnt sýningarrými í Þingholtunum í Reykjavík og í miðborg Berlínar.

Á sýningunni T E X T I eru sýnd textaverk um fimmtíu íslenskra og alþjóðlegra myndlistarmanna. Verkin á sýningunni eru valin úr um 1000 verka safneign listsafnaranna Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur en þau hafa safnað íslenskri og erlendri samtímamyndlist frá því á sjöunda áratugnum. Frjálsasta listformið Víðsjá ræðir við Birtu Guðjónsdóttur um sýninguna. Mynd: Birgir Andrésson, 2007, Í eigu Safns / SAFN Collection

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)