SELMUKLÚBBURINN - HEIMSÓKN Á ALÞINGI
Selmuklúbburinn - Heimsókn á Alþingi
15. maí, kl. 14:00
Selmuklúbbsfélögum er boðið í heimsókn á Alþingi þar sem þeir fá leiðsögn um listaverkin þar, sem mörg hver eru í eigu Listasafns Íslands.
Selmuklúbburinn er tileinkaður velunnurum Listasafns Íslands. Klúbburinn er fyrir áhugafólk um myndlist og menningu og fá meðlimir klúbbsins boð á sérstaka og fjölbreytta viðburði á vegum safnsins.
Selmuklúbburinn á sér nokkuð langa sögu.
Hann var stofnaður árið 2002 og nafn listaklúbbsins var valið með það fyrir augum að
heiðra minningu fyrsta safnstjóra safnsins, dr. Selmu Jónsdóttur listfræðings (1917-1987)
sem var öflugur frumkvöðull í kynningu á myndlist og uppbyggingu safnastarfsemi á Íslandi.
Með því að gerast velunnari Listasafns Íslands og skrá þig í Selmuklúbbinn veitist þér tækifæri til að njóta einstakra fríðinda.
Selmuklúbbsaðild felur í sér
- Boðskort á sýningaropnanir safnsins
- Aðgengi að öllum sýningum safnsins
- Aðgengi að öllum auglýstum viðburðum
- Sérstök dagskrá verður gefin út tvisvar sinnum á ári fyrir Selmuklúbbsfélaga
- Skipulagðar heimsóknir á vinnustofur listamanna og áhugaverða staði sem tengjast myndlist
- Leiðsagnir listamanna og fyrirlestrar sem tengjast yfirstandandi sýningum safnsins
- Rafrænt fréttabréf með upplýsingum um dagskrá Selmuklúbbsins og aðra starfsemi safnsins
- Safnbúð Listasafns Íslands býður velunnurum 20% afslátt af vörum sem tengjast útgáfum safnsins, ásamt einstökum sértilboðum
- Vegleg bókagjöf við inngöngu í klúbbinn
- Hér má sjá nánari upplýsingar og dagskrá Selmuklúbbsins frá janúar til júní 2021
Hægt er að skrá sig í Selmuklúbbinn með því að hafa samband við móttöku safnsins í síma 515 -9600