AÐFÖNG LISTASAFNS ÍSLANDS Í 130 ÁR –OPIN KYNNING NEMENDA VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS

1.12.2015

Opin kynning nemenda við Háskóla Íslands á námskeiðinu Aðföng Listasafns Íslands í 130 ár, föstudaginn 4. desember í lestrarsal Safnahússins við Hverfisgötu, frá kl. 9:00 - 12:00.

Nemendur Háskóla Íslands í safnafræði kynna afrakstur vinnu sinnar á námskeiði sem haldið er í samstarfi við Listasafn Íslands á haustönn. Á námskeiðinu fengu nemendur tækifæri til að kynnast starfsemi og þróun safneignar Listasafnsins allt aftur til stofnunar þess 1884. 

-Allir velkomnir.-

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17