ÆVI OG LIST NÍNU TRYGGVADÓTTUR

22.9.2015

Halldór Björn Runólfsson safnstjóri Listasafns Íslands og Una Dóra Copely ræða um líf og list móður hennar, Nínu Tryggvadóttur myndlistarmanns í Listasafni Íslands, 

–Fríkirkjuvegi 7 miðvikudaginn 23. september kl. 16.

Sýningin Ljóðvarp / Poetcast opnaði föstudaginn 18. september en þar er merkum listferli Nínu Tryggvadóttur (1913–1968) gerð góð skil með fjölda listaverka hennar og útgáfu. Verk Nínu Tryggvadóttur í safneign Listasafns Íslands eru 80 talsins, frá árabilinu 1938–1967, en auk valdra verka úr safneign verða sýnd lánsverk víða að, sem sjaldan eru sýnd, og valin verk í eigu Unu Dóru Copley, einkadóttur listamannsins, sem hafa mörg hver ekki áður verið sýnd á Íslandi.

Allir velkomnir!

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17