Margt var um manninn á sýningum og viðburðum safnsins á Barnamenningarhátíð í síðustu viku.
Í Safnahúsinu við Hverfisgötu var sýning leikskólabarna sem hafa unnið í allan vetur með þjóðsögurnar í tengslum við sýninguna Stattu og vertu að steini! sem nú stendur yfir í Safnahúsinu.
Börnin frá leikskólunum Miðborg, Furuskógi, Grænuborg og Laufásborg heimsóttu safnið reglulega í vetur og unnu í skapandi listasmiðjum í hverri heimsókn ásamt því að skoða listaverkin á sýningunni með aðferðum Sjónarafls - myndlæsisþjálfunar. Afraksturinn var sýndur á Barnamenningarhátíð á sýningunni Stóð ég úti í tunglsljósi en einnig unnu börnin að listaverkum í skólunum sínum sem sýnd voru á sýningunni. Hver leikskóli hélt opnun þar sem fjöldi gesta fögnuðu með listamönnum framtíðarinnar.
Þá sýndu nemendur í 6. bekk Melaskóla og Háteigsskóla verk sín á sýninguni Spor í Norðri – börnin merkja skrefin en sú sýning er hluti af Norræna samstarfsverkefninu, SPIN (Sprogvenner í Norden – kunsten at forstå hinander), sem safnið hefur tekið þátt í síðastliðin ár. Með áhugaverðum skóskúlptúrum og textílverkum sýndu nemendur hvaða skref þau vilja taka í átt að betra samfélagi.
Á sumardaginn fyrsta buðu svo nemendur í unglingadeild Landakotsskóla til endurvinnslusmiðju þar sem gestum og gangandi gafst tækifæri á að umbreyta og endurhanna á listrænan hátt, flíkur sem nemendur fengu gefins frá endurvinnslustöð Sorpu.
Barnamenningarhátíð er fastur liður í starfssemi Listasafns Íslands, þá bjóða börn fjölskyldum sínum á safnið þar sem fullorðnir fá frítt inn í fylgd barna, sem leiða hin eldri í gegnum sýningar safnsins enda eru þau sérfræðingarnir.




