GÆÐASTUNDIR 2019

18.12.2018

 

 

Gæðastundir í Listasafni ÍslandsDagskráin er ætluð eldri borgurum og er samsett af sérsniðnum leiðsögnum og spjalli við sérfræðinga safnsins um myndlist, yfirstandandi sýningar og starfsemi Listasafns Íslands. Viðburðirnir skapa tækifæri fyrir gesti til að nálgast myndlistina og menningararf þjóðarinnar á margvíslegan hátt. Ávallt er boðið upp á kaffi og meðlæti á gæðastundum í Listasafni Íslands. Bakkelsið er í boði Brauðs og Co sem styrkir verkefnið.

Hámarksfjöldi gesta á hverjum viðburði er 25 manns.Hægt er að skrá sig á staka viðburði með því að senda póst á netfangið mennt@listasafn.is eða í síma 515 9600.

Aðgangseyrir á safnið gildir. Frítt fyrir meðlimi Selmuklúbbsins. 

Nánari upplýsingar um viðburðina má finna á heimasíðu Listasafns Íslands, www.listasafn.is

Tengiliður dagskrár: Ragnheiður Vignisdóttir ragnheidur@listasafn.is

 

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17