GYÐJUR -KONUMYNDIR SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR SÍÐASTA SÝNINGARHELGI

25.8.2016

Sýningunni Gyðjur í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar lýkur sunnudaginn 28. ágúst. Opið alla daga nema mánudaga kl. 14-17.Portrett af konum eftir Sigurjón Ólafsson ásamt öðrum verkum hans, höggvin í stein eða tré, þar sem hinni kvenlegu ímynd - das ewig weibliche - er lýst og hún tekur á sig mynd gyðjunnar. Sýningin er í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá því að konur fengu kosningar­rétt á Íslandi.

Sigurjón Ólafsson er meðal þekktustu portrett­listamanna Norðurlanda og eftir hann liggja rúmlega 200 andlits­myndir. Flestar eru þær af karlmönnum í ábyrgðar­stöðum í þjóð­félaginu, en kven­portrett Sigurjóns eru síður þekkt, að undan­skilinni myndinni sem hann gerði af móður sinni á1938. Fyrir þá mynd hlaut Sigurjón hin eftir­sóttu dönsku Eckersberg verðlaun árið 1939. Ríkis­listasöfn þriggja Norðurlanda eiga eintök af þeirri mynd.Sýningarstjóri: Birgitta Spur

Kaffistofa opin á opnunartíma safnsins. Kaffi og heimabakað meðlæti á boðstólum.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17