HÁDEGISLEIÐSÖGN / FYRIR OPNUM TJÖLDUM

10.6.2020

Hádegisleiðsögn fimmtudaginn 11. júní kl.12:15 / Nathalie Jacqueminet forvörður og safnafræðingur tekur vel á móti gestum í sýningarsal 2, þar fer fram verkefnið Fyrir opnum tjöldum.Listasafn Íslands hefur lengi búið við mjög þröngan húsnæðiskost, einkum hvað snertir varðveislurými og er nú svo komið að safneignin rúmast engan veginn í geymslum þess og tæpast er til þess viðunandi aðstaða að sinna verkunum á viðeigandi hátt.Til að bregðast við þessum vanda hefur verið sett upp tímabundin starfsstöð í sýningarsal 2 til að hlúa að verkunum og auðvelda starfsmönnum vinnu sína við safnkostinn.Hér gefst gestum kostur á að sjá margt af því sem iðulega fer fram fyrir luktum dyrum, fylgjast með ástandsskoðun, skráningu, ljósmyndun, fyrirbyggjandi forvörslu og frágangi verka.Nú gefst því einstakt tækifæri til að kynnast mikilvægum þætti í starfsemi höfuðsafns þjóðarinnar á sviði myndlistar, sem hefur það verkefni að varðveita myndlistararf Íslendinga.-Kaffi list - bubblur og beyglur hefur nú opnað í veitingarýminu í Listasafni Íslands. Þar er meðal annars boðið upp á salöt, bubblur og beyglur.Verið velkomin í heimsókn

Tengiliður dagskrár: Guðrún J. Halldórsdóttir gudrun@listasafn.is

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17