31. ÁGÚST KL. 12:10
Íslenski flautukórinn og Listasafn Íslands standa fyrir hádegistónleikaröð í Listasafni Íslands. Síðasta föstudag hvers mánaðar er boðið upp á fjölbreytta tónlist til þess að vinda ofan af vinnuvikunni og endurræsa skilningarvitin.Aðgangur er ókeypis.
Hafdís Vigfúsdóttir
J.S. Bach (1685 - 1750): Partita í a-moll I. Allemande II. Corrente III. Sarabande IV. Bourrée Anglaise Luciano Berio (1925 - 2003): Sequenza I (1958) Þorkell Sigurbjörnsson (1938 - 2013): Níu (samhverfar) rissur
Hugmyndin með Andrými í litum og tónum er að fólki gefist kostur á að eiga nærandi stund við samtal milli sjónlistar og tónlistar.
„Við verðum að endurheimta tímann sjálfan. Slíta hugsunina um hámarks afköst, „tíminn er peningar“ og gefa tímanum rými til að streyma í öfuga átt - til okkar.
Við verðum að taka tímann aftur inn í okkur til að leyfa meðvitundinni að anda og óreiðukendum hugum okkar að staldra við og hljóðna. Þetta getur listin gert og söfn í nútímanum rúmað.“
- Bill Viola
Tónleikaröðin er styrkt af Tónlistarsjóði Menntamálaráðuneytisins. Það er tími til að hægja á taktinum í deginum og gefa sér næði til að njóta gersema og gloría.