HEFUR ÞÚ ÁHUGA Á SAFNBÚÐARREKSTRI Í SKAPANDI UMHVERFI?

8.11.2018

Hefur þú áhuga á safnbúðarrekstri í skapandi umhverfi?

Listasafn Íslands leitar að árangursdrifnum og skapandi einstaklingi til að hafa daglega umsjón með safnbúðum safnsins og taka þátt í ýmsum viðburðum sem safnið stendur að.

Viðkomandi vinnur náið með markaðs- og þjónustustjóra og tekur virkan þátt í þróun hugmynda og ákvörðunum um endanlegt vöruúrval, sem endurspeglar safnkost Listasafns Íslands, hlutverk og gildi.

Helstu verkefni:

·        Daglegur rekstur safnbúða Listasafns Íslands

·        Pantanir og móttaka á vörum og umsjón með söluvarningi

·        Framsetning vöru og umsjón með sölusvæðum

·        Afgreiðsla og uppgjör

·        Umsjón með vefverslun

·        Dreifing á eigin framleiðslu til endursöluaðila

·        Þátttaka í mönnun safnbúða og verkstjórn afleysingarfólks

·        Þátttaka í ákvörðunum um samsetningu vöruframboðs

·        Þátttaka í mótun hugmynda um sérframleiðslu vara og minjagripa.

 

Hæfniskröfur:

·        Reynsla af verslunarrekstri/verslunarstjórn

·        Góð tölvukunnátta, þekking á birgðabókhaldi, talnalæsi

·        Góð tungumálakunnátta

·        Sjálfstæður, jákvæður, traustur og hugmyndaríkur starfskraftur

·        Lipur og örugg framkoma, snyrtimennska

·        Rík samskiptahæfni og þjónustulund

·        Áhugi á listum og menningu er kostur.

 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingi Thor Jónsson markaðs- og þjónustustjóri í síma 5159611/6219611 (ingi@listasafn.is) og Anna G. Ásgeirsdóttir fjármála- og mannauðsstjóri í síma 5159615 ( annag@listasafn.is ).

Um fullt starf er að ræða og fer vinnutími að nokkru eftir árstíðabundnum opnunartíma safnsins.  Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi SFR og fjármálaráðherra. 

Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um auglýst starf.

Umsókn skal fylgja náms- og ferilskrá og upplýsingar um umsagnaraðila. Umsóknarfrestur er til og með 26. nóvember. Umsóknum skal skila rafrænt á netfangið umsokn@listasafn.is.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Litið verður svo á að umsóknir gildi í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)