ÍSLENSKT Á ÞORRA

28.1.2020

Íslenskt á ÞorraHádegistónleikar Íslenska flautukórsins í Listasafni Íslands, laugardaginn 1. febrúar kl. 12.10.

Petrea Óskarsdóttir, þverflautaÞórarinn Stefánsson, píanó

Kolbeinn Bjarnason (1958)Ísland, farsælda frón (2012)Sjálfsmynd (2018)úr Ógjörningar fyrir píanó (Örn Ingi in memoriam)

Oliver Kentish (1954)Lífið er LEIK-fimi - eftirspil (2019)Nocturne til Dillu (1980)

John Speight (1945)Tvenna (2019) frumflutningurVier Stücke (1971 – 1977)

Tónleikarnir eru styrktir af ReykjavíkurborgHugmyndin með Andrými í litum og tónum er að fólki gefist kostur á að eiga nærandi stund við samtal milli sjónlistar og tónlistar.

„Við verðum að endurheimta tímann sjálfan. Slíta hugsunina um hámarks afköst, „tíminn er peningar“ og gefa tímanum rými til að streyma í öfuga átt - til okkar.Við verðum að taka tímann aftur inn í okkur til að leyfa meðvitundinni að anda og óreiðukendum hugum okkar að staldra við og hljóðna. Þetta getur listin gert og söfn í nútímanum rúmað.“- Bill ViolaÞað er tími til að hægja á taktinum í deginum og gefa sér næði til að njóta gersema og gloría.Markmið samstarfs Íslenska flautukórsins og Listasafns Íslands er að koma á samtali milli safnkosts listasafnsins og sýninga þess við tónlistarlífið í landinu. Ætlunin er að færa gesti listasafnsins og tónlistarunnendur saman í nýrri upplifun í listasafninu þar sem tónlist og myndlist kallast á. Víkka út sjónarhorn listarinnar frá myndrammanum að öllu rýminu sem býr í skynjun okkar. Íslenski flautukórinn býr yfir mikilli tónlistarlegri vídd og flytur tónlist frá öllum tímabilum tónlistarsögunnar. Með hádegistónleikaröðinni er lögð áhersla á að nýta flautuna sem kammerhljóðfæri og má þar heyra tónlist í samspili við önnur hljóðfæri og smærri hljóðfærasamsetningar, allt niður í einleiksverk.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17