Kennaraklúbbur Listasafns Íslands heldur áfram að vaxa og dafna!
Nú þegar árið er að líða þökkum við fyrir góðar samverustundir í safnhúsum Listasafns Íslands þar sem kennarar hafa komið saman á skipulögðum viðburðum, notið góðra stunda, fræðslu, sótt námskeið og deilt sinni reynslu og þekkingu með safninu.
Hér má sjá myndir frá síðasta viðburði Kennaraklúbbsins þar sem boðið var upp á jólaglögg og upplestur úr bókinni Götuhorn - skáldtextar innblásnir af íslenskri myndlist.
Ný og spennandi dagskrá Kennaraklúbbsins verður birt á næstu vikum en við hvetjum alla kennara til þess að skrá sig í klúbbinn, sér að kostnaðarlausu með því að senda póst á netfangið mennt@listasafn.is
