KRAKKAKLÚBBURINN KRUMMI- LISTIN AÐ TEIKNA

25.3.2019

KRAKKAKLÚBBURINN KRUMMILISTIN AÐ TEIKNA

Laugardaginn 23. mars kl. 14.

 

Undurfögur listaverk veita innblástur að teikningum sem börnin teikna á staðnum undir leiðsögn. Frábært tækifæri til þess að leyfa listrænum hæfileikum að njóta sín í fallegu umhverfi.Umsjá: Anna Cynthia Leplar teiknari.

Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um listaverkin í safneign Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í fallegu umhverfi.

Með stofnun þessa nýja krakkaklúbbs viljum við veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á Listasafninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.Krakkaklúbburinn Krummi er fyrir börn á öllum aldri.

Með Krakkaklúbbnum Krumma vill Listasafn Íslands heiðra Ásgerði Búadóttur myndlistarmann með því að nota skemmtilegar og líflegar klippimyndir úr barnabókinni Rauði hatturinn og krummi eftir Ásgerði, sem innblástur og merki barnastarfsins. 

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)