Verk eftir Doddy Maggýju - Decore

Listasafn Íslands hlýtur 5.300.000 kr. styrk úr Barnamenningarsjóði

30.5.2022

Listasafn Íslands hlaut 5.300.000 kr. styrk úr Barnamenningarsjóði fyrir verkefnið Listræn sköpun eflir náttúruvitund.
Ný sýning í Safnahúsinu við Hverfisgötu verður vettvangur skapandi nálgunar og tengsla milli myndlistar og vísinda. Áhersla verður lögð á að efla skapandi, gagnrýna hugsun með lista- og vísindasmiðjum sem vekja áhuga þátttakenda á fjölbreyttum málefnum sjálfbærni með getu til aðgerða að leiðarljósi. Unnið verður með valin verk úr safneign Listasafns Íslands og þau tengd við valin þemu vísindanna. Kennarar á smiðjunum verða bæði listamenn og vísindamenn.
Með þessu verkefni mun Listasafnið efla samstarf sitt við Landvernd, Vísindasmiðju Háskóla Íslands og fleiri fagaðila þar sem fjölmörg börn og ungmenni munu njóta góðs af.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)