MOSKAN - FYRSTA MOSKAN Í FENEYJUM

18.12.2015

Framlag Íslands til Feneyjatvíæringsins hefur áður vakið mikla athygli á alþjóðlegum vettvangi en sjaldan eins og í ár. Fjallað hefur verið um verkið í fjölmiðlum austan hafs og vestan og hefur það kallað á sterk viðbrögð. Sem kunnugt er var skálanum lokað af borgaryfirvöldum í Feneyjum þann 22. maí, tveimur vikum eftir opnun.

Til málþingsins efndu Listasafn Íslands og Listfræðafélag Íslands í samstarfi við  Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar og með stuðningi Sambands íslenskra myndlistarmanna, SÍM.

Upptaka af málþingi í Listasafni Íslands um framlag Íslands til Feneyjatvíæringsins 2015: MOSKAN -Fyrsta moskan í Feneyjum, frá 5. desember.Umfjöllun í útvarpsþættinum Víðsjá um málþingið. (aðgengilegt til 6. mars 2016)

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17