Muggur — Ný og vegleg útgáfa

4.10.2021

GUÐMUNDUR THORSTEINSSON - MUGGUR

Vegleg útgáfa í tilefni yfirlitssýningar á verkum Guðmundar Thorsteinssonar - Muggs er komin út hjá Listasafni Íslands. Bókin inniheldur aðfaraorð Hörpu Þórsdóttur, safnstjóra, ítarlega grein eftir Kristínu G. Guðnadóttur sýningarstjóra, grein eftir Rakel Pétursdóttur sérfræðing hjá Listasafni Íslands og grein eftir Guðrúnu Baldvinsdóttur bókmenntafræðing. Þá inniheldur bókin ljósmyndir af úrvali listaverka eftir Mugg.

Falleg útgáfa um íslenska myndlist sem listunnendur ættu ekki að láta framhjá mér fara!

Ritstjóri / Editor: Harpa ÞórsdóttirÚtgáfustjóri / Publication manager: Ragnheiður VignisdóttirHöfundar / Author of articles: Kristín G. Guðnadóttir, Rakel Pétursdóttir og Guðrún Baldvinsdóttir.Ljósmyndun listaverka / Photos of artworks: Sigurður Gunnarsson.Tungumál / Languages: Íslenska, enska / Icelandic, EnglishUmfang / Number of pages: 208Útgefandi / Publisher: Listasafn Íslands / National Gallery of Iceland, 2021Rit nr 59 / Publication No. 60ISBN 978-9979-864-63-9

Hér má kaupa eintak í vefverslun.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)