ORKA Í VASULKA-STOFU

18.9.2017

Í tilefni þess að 20 ár eru liðin frá því að Steina (Steinunn Briem Bjarnadóttir Vasulka) var fyrst íslenskra myndlistarkvenna fulltrúi þjóðarinnar á Feneyjatvíæringnum, efnir Vasulka-stofa til sýningar á vídeóinnsetningu hennar Orka, sem Steina sýndi í íslenska skálanum í Feneyjum árið 1997.Í verkinu birtist íslensk náttúra áhorfandanum á áhrifaríkan hátt, ekki síst vegna stafrænnar úrvinnslu Steinu á upptökum frá Íslandi. Steina leitast við að miðla annars konar sýn á íslenska náttúru í verkum sínum, þar sem áhorfandinn sér landslagið með öðrum augum en sínum eigin – augum vélarinnar.  

Á sýningunni má einnig sjá brot úr gagnasafni Vasulka-stofu.

Steina og Woody Vasulka hafa haldið vel utan um arfleifð sína og varðveitt þau gögn sem tengjast list þeirra og starfi. Við stofnun Vasulka-stofu, undir lok árs 2014, gáfu þau Listasafni Íslands stóran hluta af gagnasafni sínu til varðveislu, en í því er meðal annars að finna upprunaleg listaverk, skissubækur, heimildarmyndir, bókasafn, ljósmyndir, sýningarskrár, viðurkenningar, greinar, plaköt og persónuleg skjöl.

 

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17