Gjöf til Listasafn Íslands

19.5.2026

Í lok síðasta árs  komu tveir gámar frá Texas til Íslands. Í gámunum var hluti af ævistarfi tveggja merkra listamanna, þeirra Kristínar Halldórsdóttur (1917–2002) og Jóhanns Eyfells (1923 –  2019) en þau voru lífsförunautar, allt frá því þau hittust fyrst þar sem þau voru við nám í Flórída á fimmta áratug síðustu  aldar.  Ættingjar þeirra hjóna, með Ingólf Eyfells son Jóhanns í forsvari,  skipulögðu fluttninginn á verkunum til Íslands, í samvinnu við Listasafn Íslands og Eimskipafélagið.  Ættingjar gáfu Listasafni Íslands 25 verk eftir Jóhann, ásamt verkum eftir Kristínu, en Listasafn Reykjavíkur mun einnig fá nokkur verk eftir þau hjónin að gjöf.  

Kristín og Jóhann unnu bæði að list sinni ævina á enda en lengst af bjuggu þau í Flórída þar sem Jóhann kenndi myndlist við Central Florida háskólann í 30 ár. Eftir lát konu sinnar ákvað Jóhann, þá áttræður, að flytja með allt sitt hafurtask til Texas, 170 tonn á  18 flutningsbílum af stærstu gerð, en þar festi hann kaup á jörð og kom verkum þeirra hjóna fyrir. Jóhann vann áfram að list sinni í Texas og sýndi verk sín og Kristínar þar.

Áður en verkin voru flutt til Íslands hélt hið virta listasafn Nasher Sculpture Center í Dallas (https://www.nashersculpturecenter.org/art/nasher-public/exhibition/id/386) sýningu á hluta verka Jóhanns, en Gavin Morrison var sýningarstjóri. Árið 2028 er ráðgerð yfirlitssýning á verkum Jóhanns í Listasafni Íslands og verður þá gefin út sýningarskrá um feril hans. Jóhann var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum árið 1993 ásamt Hreini Friðfinnssyni.

Mynd: frá sýningu Jóhanns í Nasher Sculpture Center.

Rausnarleg gjöf ættingja Jóhanns Eyfells og Kristínar Halldórsdóttur.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17