![](/_next/image/?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Flistasafn-islands%2Fsafnahusid-vid-hverfisgotu-sjonarhorn-sunnudagsleidsogn-i-umsjon-listasafns-islands-1.jpg%3Fauto%3Dcompress%2Cformat%26rect%3D0%2C0%2C1615%2C1292%26w%3D1615%26h%3D1292&w=3840&q=100)
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU - SJÓNARHORN: SUNNUDAGSLEIÐSÖGN Í UMSJÓN LISTASAFNS ÍSLANDS
23.2.2016
Dagný Heiðdal, listfræðingur og deildarstjóri listaverkadeildar leiðir gesti um sýninguna Sjónarhorn í Safnahúsinu við Hverfisgötu.
Sjónarhorn er grunnsýning í sjónrænum menningararfi Íslendinga en þar eru sýnd verk í eigu Þjóðminjasafns Íslands, Listasafns Íslands, Náttúruminjasafns Íslands, Þjóðskjalasafns Íslands, Landsbókasafns-Háskólabókasafns og Stofnunar Árna Magnússonar.Samstarf þessara sex stofnana býður upp á einstakt tækifæri til að skoða arfleifðina í nýju samhengi og varpa ljósi á ósagða sögu með nýstárlegum hætti.
Listasafn Íslands á um 130 verk á sýningunni og verður sjónum beint að þeim í leiðsögninni.
Sýningarstjóri er Markús Þór Andrésson.
Allir velkomnir!