SAGA –Þegar myndir tala í KUMU; Samtímalistasafninu í Tallinn, Eistlandi.

14.10.2015

Verkin á sýningunni eru valin af safnstjóra Listasafns Íslands, Halldóri Birni Runólfssyni og þýskum sýningarstjóra, Norbert Weber, og endurspeglar valið þá sýn á íslenska menningu sem hið glögga gestsauga getur veitt. Sýningin varpar ljósi á menningu þjóðar, frá innstu hugarfylgsnum til pólitískra átaka. Áður var hún til sýnis í Recklinghausen 2014 og Listasafni Íslands 2015.

Verk á sýningunni eiga: Björk, Dieter Roth, Erró, Gabríela Friðriksdóttir, Helgi Þorgils Friðjónsson, Hrafnkell Sigurðsson, Hulda Hákon, Jóhannes S. Kjarval, Kristleifur Björnsson, Ólafur Elíasson,Ólöf Nordal, Ósk Vilhjálmsdóttir & Anna Hallin, Ragnar Kjartansson, Sigurður Guðmundsson, Steingrímur Eyfjörð og Þórður Ben Sveinsson.

Sjá heimasíðu KUMU:http://kumu.ekm.ee/en/syndmus/saga-iceland-art-and-narrative/

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17