Ísland úr fjarska: Furðuleg sýn á íslenskt landslag frá 18. öld
Í safneign Listasafns Íslands leynast 24 sérkennileg landslagsmálverk frá 18. öld sem öll bera heiti sem vísa til Íslands. Höfundur verkanna er óþekktur og margt bendir til þess að hann hafi aldrei stigið fæti á íslenska grundu. Þess í stað virðist hann hafa skapað sína eigin mynd af landinu út frá m.a. ferðabókum og kortum.
Verkin bárust Listasafninu árið 1928 þegar Matthías Þórðarson, þáverandi þjóðminjavörður og umsjónarmaður safnsins, tók við þeim að gjöf frá erfingjum danska lénsbarónsins og forsætisráðherrans Tages Reedtz-Thotts. Á mörgum myndanna má sjá seglskip, fólk og sjófugla en landslagið er langt frá því að vera sú kunnuglega íslenska náttúra sem við þekkjum í dag.
Sérstaka athygli vekja fjöllin. Þau eru há, keilulaga og sums staðar helst lík dropasteinum eða sykurtoppum. Titlar eins og Sukker Toppene i Island og Pÿramiederne i Island gætu jafnvel verið sóttir í Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar frá 1772, þar sem svipuð orð eru notuð í lýsingum á íslensku landslagi.
Þótt landslagið sé ímyndað virðist listamaðurinn hafa leitað raunsæis í smáatriðunum. Fólk, fuglar og dýr gegna mikilvægu hlutverki í myndunum, meðal annars til að gefa tilfinningu fyrir stærð og fjarlægð. Mannamyndirnar minna um margt á þær myndskreytingar sem fylgdu ferðalýsingum frá Íslandi á 18. öld.
Nákvæmlega hver málaði verkin og hvaðan hann fékk upplýsingar sínar er enn óþekkt. Ljóst er þó að hann vann heimildir sínar á frjálslegan hátt og skapaði fantasíukennda mynd af Íslandi – þar sem ferðalög, landafræði, náttúruöfl og framandi landslag koma saman.
Nú fer hver að verða síðastur að sjá þessa fágætu sýn á Ísland á sýningunni Ísland úr fjarska í Safnasafninu á Svalbarðseyri. Sýningin er samstarfsverkefni Listasafns Íslands og Safnasafnsins og stendur til 4. október 2026.


