STYRKTARSJÓÐUR SVAVARS GUÐNASONAR OG ÁSTU EIRÍKSDÓTTUR

26.9.2017

STYRKTARSJÓÐUR SVAVARS GUÐNASONAR OG ÁSTU EIRÍKSDÓTTUR AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM ÚR SJÓÐNUM – UMSÓKNARFRESTUR TIL OG MEÐ 23. OKTÓBERStyrktarsjóður Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur óskar hér með eftir umsóknum um styrk úr sjóðnum. Styrkirnir eru tveir að upphæð kr. 500.000, hvor og veitist tveimur ungum, efnilegum myndlistarmönnum. 

Eftirfarandi upplýsingar og gögn þurfa að fylgja umsóknum: Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang og símanúmer, þrjár til fimm ljósmyndir, litskyggnur eða stafrænar myndir af verkum umsækjanda ásamt ítarlegum náms- og listferli. 

Umsóknir merktar: Styrktarsjóður Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur, sendist til og með 23. október 2017 til Listasafns Íslands, Laufásvegi 12, 101 Reykjavík.Í dómnefnd sitja: Fulltrúar SÍM og LHÍ auk safnstjóra LÍ.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)