SUMARTÓNLEIKAR LISTASAFNS SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR

2.2.2016

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar býður tónlistarfólki að sækja um þátttöku í sumartónleikum safnsins sem haldnir verða á þriðjudagskvöldum frá 5. júlí til 9. ágúst 2016. 

Umsókn skal fylgja (i) efnisskrá, eða drög að efnisskrá, (ii) upplýsingar um flytjendur (C.V.) og (iii) kjörtími tónleika innan fyrrgreinds tímabils. Umsóknir skulu hafa borist í síðasta lagi 1. mars 2016. Valið verður úr umsóknum og öllum svarað fyrir lok mars. 

Umsóknir má senda í pósti á neðangreint póstfang, eða í tölvupósti LSO@LSO.is (Þeir sem senda umsókn með tölvupósti fá staðfestingu á móttöku umsóknar)

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Laugarnestanga 70 105 Reykjavík Sími: 553 2906

nánari upplýsingar á heimasíðu Listasafns Sigurjóns Ólafssonar.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17