SUNNUDAGSLEIÐSÖGN: NÍNA TRYGGVADÓTTIR - LJÓÐVARP

16.9.2015

Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands, leiðir gesti um sýninguna Nína Tryggvadóttir - Ljóðvarp.Á sýningunni, Nína Tryggvadóttir - Ljóðvarp, er merkum listferli Nínu Tryggvadóttur (1913–1968) gerð góð skil með fjölda listaverka hennar og útgáfu. Verk Nínu Tryggvadóttur í safneign Listasafns Íslands eru 80 talsins, frá árabilinu 1938–1967, en auk valdra verka úr safneign verða sýnd lánsverk víða að, sem sjaldan eru sýnd, og valin verk í eigu Unu Dóru Copley, einkadóttur listamannsins, sem hafa mörg hver ekki áður verið sýnd á Íslandi.prenta frétt

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17