VANDALISMI - LANDNÁMAN

20.11.2017

 

Vandalismi – LandnámanSpjallborðsumræður um hugmyndalega arfleifð Asgers Jorn

Sunnudaginn 26. nóvember kl.14 mun Landnáman, félag um áhuga á hugmyndalegri arfleifð danska listamannsins Asgers Jorn, eiga í samræðu um hið stóra verkefni hans, Scandinavian Institute of Comparative Vandalism í safnbyggingu Listasafns Íslands. Þar stendur nú yfir sýning sem ber titilinn “Comparative Vandalism” og byggir á ljósmyndaheimildum frá rannsóknarferð Jorn og samstarfsfólks hans til Gotlands 1964, sem var mikilvægur hluti af fyrrgreindu verkefni hans, er hann stefndi á að yrði gefið út í 32 bindum og innihéldi 10.000 ára sögu alþýðulistar á Norðurlöndunum. Þátttakendur í spjallinu eru nokkrir félagar í Landnámunni – hópnum; myndlistarmennirnir Steingrímur Eyfjörð og Unnar Örn Jónasson og Jón Proppé listheimspekingur. Umræðum stýrir Birta Guðjónsdóttir deildarstjóri sýningadeildar Listasafns Íslands, sem jafnframt er félagi í Landnámunni.Spjallið fer fram á íslensku.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir meðlimi Selmuklúbbsins. 

Í lok árs 1950 hóf hinn fjölhæfi listamaður Asger Jorn (1914–1973, Danmörku) að vinna að annars konar listasögu: sinni eigin „Skandinavísku samanburðarstofnun um vandalisma“ (e. Scandinavian Institute of Comparative Vandalism). Jorn ætlaði sér það verkefni að skapa alfræðirit í 32 bindum, sem fjalla skyldi um norræna alþýðulist, en tugir þúsunda ljósmynda hans fyrir verkefnið enduðu ónotaðar í gríðarlega stóru skjalasafni. Sýningin Comparative Vandalism byggir á þessum ljósmyndum. Asger Jorn varði sumrinu 1964 á Gotlandi, lítilli eyju í Svíþjóð. Dvöl hans þar var hluti af listasöguverkefninu sem hann nefndi „10.000 ár norrænnar alþýðulistar“ (e. 10.000 Years of Nordic Folk Art). Hann hafði um árabil helgað rannsóknarferðir þessu verkefni – með það að markmiði að skapa og koma á prent 32 listbókverkum, sem samanstæðu aðallega af hans eigin ljósmyndum. Upphaflega var honum lofað stuðningi frá fræðaheiminum, en fjármögnunin varð aldrei að veruleika og tugþúsundir ljósmynda hans urðu þess í stað að viðamiklu skjalasafni, sem hann kallaði „Scandinavian Institute of Comparative Vandalism“. Sýningin gefur mynd af nálgun Jorns og sýnd eru um eitt hundrað kontaktprent (e. contact-sheets) frá ferð hans til Gotlands árið 1964. Með hugmyndinni um samanburð á sýnilegum ummerkjum um vandalisma sem upphafspunkt, leitaðist Jorn við að endursemja listasöguna og endurhugsa vinnuferli listamannsins. Tæknilega séð mætti skynja undiröldu einstakra, sjónrænna stíla er teygja anga sína frá þjóðflutningatímabilinu og Vandölum, undiröldu sem erfitt er að skilgreina. Gæti alþýðulistin sett okkur í beint samband við listrænan ásetning, sem týnst hefur í nútímavæðingunni?  Í ljósmyndunum eru viðfangsefnin aðskilin frá samhengi sínu. Uppstækkanir þeirra gera okkur kleift að bera saman form, og forsögulegur tími, miðaldir og samtíminn eru sameinuð í fornleifafræðilegu samklippi mismunandi mynda.Sýningarstjóri: Henrik Andersson

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)