VEFSÝNINGAR Á SARPUR.IS

12.11.2015

Á vefsýningunni eru málverk eftir Nínu Sæmundsson í eigu Listasafns Íslands, en þessi verk eru mun minna þekkt en höggmyndir hennar sem má margar sjá á sýningunni Nína Sæmundsson - Listin á hvörfum og á opinberum vettvangi, t.d. styttuna Móðurást í Mæðragarðinum við Lækjargötu í Reykjavík og Hafmeyjuna sem er hluti af höggmyndagarðinum Perlufestin við Tjörnina í Reykjavík.

Skoða sýningu á heimasíðu Sarps

Rúmlega helmingur safneignar Listasafns Íslands hefur þegar verið skráður í Sarp og þar er hægt að sjá verkin og helstu upplýsingar sem þeim fylgja. Safnmunaskrá Listasafns Íslands í Sarpi er að finna hér.Í Sarpi má sjá fleiri vefsýningar með aðföngum úr safneign Listasafns Íslands:

Benedikt Gröndal - brot úr lífi og verkum

Stofngjöf Listasafns Íslands

Grafíkverk eftir Edvard Munch í Listasafni Íslands

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17