Vorfögnuður Kennaraklúbbsins í Listasafni Einars Jónssonar.

19.5.2026

Fjöldi kennara sótti leiðsögn Silju Pálmarsdóttur, sérfræðings á vorfögnuði Kennaraklúbbs Listasafns Íslands í Listasafni Einars Jónssonar. Kennaraklúbburinn stendur fyrir sérstökum fræðsluviðburðum og námskeiðum fyrir kennara um land allt. Við hvetjum kennara, leiðbeinendur og áhugafólk um kennslu og miðlun til þess að skrá sig í klúbbinn, sér að kostnaðarlausu.

Skráning fer fram í gegnum netfangið mennt@listasafn.is, með nafni og netfangi. Kennarar hafa í auknum mæli notað listasafnið sem námsvettvang og nú síðustu áramót bættist Listasafn Einars Jónssonar við starfssemi safnsins.

Hér má bóka heimsókn skólahópa: Listasafn Íslands

Sjáumst í sumar!             

"Þetta er alveg einstakt safn og mikilfenglegt að sjá þessar stóru höggmyndir. Það verður gaman að koma með nemendur hingað" Meðlimur kennaraklúbbsins

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17