
Barnamenningarhátíð í Listasafni Íslands
mán
20. apríl — 26. apríl
10:00—17:00
Stóð ég úti í tunglsljósi! Sjálflýsandi draugar, töfrasprotar og tröllahringir
Lessalur 2. hæð
Sýningin er afrakstur samstarfsverkefnis Listasafns Íslands og fjögurra leikskóla í Reykjavík sem allir hafa notað safnið sem námsvettvang og heimsótt safnið reglulega síðustu árin. Verkefnið var unnið á vorönn 2026 þar sem hver leikskóli heim sótti Safnahúsið þrisvar sinnum og unnið var út frá sýningunni Stattu og vertu að steini! Þjóðsögur í íslenskri myndlist. Í hverri heimsókn var rýnt í tvö listaverk út frá aðferðum Sjónarafls - þjálfunar í myndlæsi þar sem áhersla var lögð á virka tjáningu og hlustun. Einnig unnu börnin skapandi verk efni í listasmiðjum þar sem unnið var út frá þremur þemum sýningarinnar: draugum, álfum/huldufólki og tröllum. Í kjölfar safnaheimsókna unnu börnin listaverk í leikskólunum og eru þau verk jafnframt til sýnis.
Þátttökuskólar: Leikskólarnir Furuskógur, Grænaborg, Laufásborg og Miðborg. Sýningin er styrkt af Barnamenningarhátíð í Reykjavík.
SPIN - Spor í Norðri – börn merkja skrefin.
Tröppur í stigarými
Kynntu þér drauma SPIN-nemenda um hvernig við getum mótað heiminn saman. Með endurnýttum skóm, skapandi tjáningu og stafrænum verkum sýna börnin hvaða skref þau vilja taka, bæði fyrir sjálf sig og samfélagið. Hvernig þau vilja vera í heiminum og hvernig þau vilja að heimurinn sé. Í SPIN verkefninu sameinast tungumál, sögur og samfélög barna sem tengjast þvert á Norðurlönd - Tungumálavinir á Norðurlöndum - listin að skilja hvert annað er verkefni þar sem leitast er við að efla menningarnæmi og færni, styðja við inngildingu og byggja á þeirri grunnhugsun að fjöltyngi sé dýrmæt auðlind.
Listaverkið Spor í Norðri - börn merkja skrefin er framhald af sýningu þar sem skapandi verk 250 norrænna nemenda voru sýnd á Dokk1 í Árósum haustið 2025.
Samhliða sýningunni verður listasmiðja í Borgarbókasafninu Grófinni 20. apríl kl.16:30–18:00
Skapandi skósmiðja: Barnamenningarhátíð - Dagskrá | Reykjavik
Endurvinna, endurhanna, endurhugsa og endurnýta
Kaffihús 1.hæð
Sumardaginn fyrsta, 23. apríl kl. 13 – 16
Nemendur í unglingadeild Landakotsskóla bjóða í samstarfi við Unga umhverfissinna upp á opna endurhönnunarsmiðju í kaffihúsi Safnahússins í tengslum við verkefni sem þau hafa unnið í skólanum tengt Barnamenningarhátíð 2026
Markmið þessa verkefnis er að hvetja nemendur til að hugsa um þann endalausa úrgang sem verður til í textíliðnaði og fataframleiðslu, hvernig hægt er að sporna við honum sem einstaklingar og þannig draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum fatasóunar og hraðtísku. Með því að kaupa ekki fjöldaframleidda tísku, heldur skapa sína eigin úr fatnaði úr nytjaverslunum, endurhugsuðu nemendur tilgang og hönnun fatnaðar.
Hver nemandi fékk það verkefni að endurhanna notaða hettupeysu eftir eigin hugmyndum. Hettupeysurnar voru klipptar, saumaðar, útsaumaðar, bættar og skreyttar. Þeir sem höfðu tíma gátu einnig tekið boli úr nytjaverslunum og endurhannað þá.
Markmiðið í stuttu máli var að taka þátt í að bjarga jörðinni, hafa gaman og uppgötva töfra þess að hanna og endurgera eigin föt
Verkefnið er í lifandi ferli, sumir nemendanna eru búnir, aðrir í miðju sköpunarferlinu. Í smiðjunni í Safnahúsinu gefst einstakt tækifæri til að taka þátt í að endurhanna notaðar flíkur á skapandi og skemmtilegan hátt undir leiðsögn nemenda og kennara, og um leið skoða afraksturinn á vinnu nemendanna úr skólanum.
Öll velkomin!
Verkefnið er styrkt af Barnamenningarhátíð í Reykjavík.

