
Krakkaklúbburinn Krummi
lau
7. nóv
14:00—16:00
Blátt lítið blóm eitt er
Við njótum þess að skoða litríkan og fjölbreyttan blómaheim Eggert Pétursson og veitum athygli lögun, litum og smáatriðum blómanna í verkum hans. Í listaverkstæðinu búum við síðan til okkar eigin blómabreiðu og leyfum ímyndunaraflinu að blómstra í litríkri sköpun.
Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um sýningarnar í Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi. Með Krakkaklúbbnum Krumma vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.
Staðsetning: Fríkirkjuvegur 7

