
Fram fyrir sólina
sun
11. okt
16:00—17:00
Fram fyrir sólina
Tónleikar í Safnahúsinu, Hverfisgötu 15
Laufey Sigurðardóttir fiðla og Elísabet Waage harpa
Ókeypis aðgangur er á tónleikana.
Yfirskrift fiðlu-og hörputónleika í Safnahúsinu er heiti tónsmíðar Danans Hans-Henrik Nordström. Hann samdi verkið fyrir Laufeyju Sigurðardóttur fiðluleikara og Elísabetu Waage hörpuleikara sem frumfluttu það í Kaupmannahöfn í nóv. 2025. Innblástur tónskáldsins er fenginn frá deildarmyrkva á sólu árið 2004 en þá fór Venus fram fyrir sólina.
Tónleikarnir hefjast á flutningi dúósins á Þjóðlífsþáttum - Íslenskri svítu Jórunnar Viðar sem samin var á þjóðhátíðarárinu 1974. Í tónsmíðinni nýtir Jórunn þjóðlagaarfinn á snilldarlegan hátt. Upphaflega var verkið samið fyrir fiðlu og píanó en tónskáldið lagði blessun sína yfir hörpuútgáfuna og lýsti yfir ánægju sinni með hana.
Að lokum leika Laufey og Elísabet Svipbrigði Kolbeins Bjarnasonar en hann skrifaði verkið fyrir þær 2024. Þar er svipbrigðum í frönskum barokkteikningum lýst í tónum og notar Kolbeinn jafnt hefðbundinn sem afar nýstárlegan leikmáta til að túlka svipina.
EFNISSKRÁ
Jórunn Viðar (1918-2017): Þjóðlífsþættir – Íslensk svíta (1974)
-1. Ávarp
-2. Óttusöngur
-3. Þjóðlag (Hættu´að hrína, Mangi minn)
-4. Fiðlulag
-5. Vikivaki
Hans-Henrik Nordström (1947): Fram fyrir sólina (Foran solen) (2025)
Kolbeinn Bjarnason (1957): Svipbrigðin (2023)
Samkvæmt teikningum Charles le Brun, Expressions passions de l‘âme
i. Einfaldur líkamlegur sársauki
ii. Depurðin
iii. Hláturinn
iv. Fiðla – Depurð Harpa – Hlátur
v. Lotning
vi. Nístandi sársauki
vii. Frá sér numin
viii. Tilbrigði um depurð
ix. Tilbrigði um hlátur
x. Skelfingin
xi. Fyrirlitningin
xii. Fiðla – Fyrirlitning Harpa – Frá sér numin
xiii. Hin kyrrláta gleði
--
Laufey Sigurðardóttir er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Hún stundaði framhaldsnám í Bandaríkjunum hjá próf. Neikrug og á Ítalíu. Laufey var fastráðin við Sinfóníuhljómsveit Íslands auk þess að fást við einleik og kammermúsík. Frá árinu 1997 hefur hún skipulagt tónlistarhátíðina “Músík í Mývatnssveit” um páska. Einnig hefur hún séð um Mozart-tónleika á fæðingardegi tónskáldsins á vegum Reykjavíkurborgar.
Elísabet Waage stundaði píanó- og hörpunám við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hún lauk einleikara- og kennaraprófi á hörpu frá Konunglega Tónlistarháskólanum í den Haag, Hollandi. Kennari hennar þar var Edward Witsenburg. Kammermúsík, mest í dúóformi og með hópum s.s. Caput, skipar stóran sess í starfi hennar. Elísabet kennir á hörpu hjá Tónlistarskóla Kópavogs og hefur auk þess starfað með ýmsum sinfóníuhljómsveitum og leikið einleik.
Laufey og Elísabet hafa stillt saman strengi sína í þrjá áratugi. Tónleikahald þeirra hefur verið vítt og breitt um Ísland, í Hollandi, Þýskalandi, Danmörku og á Ítalíu. Íslensk tónskáld hafa samið og tileinkað þeim tónsmíðar sínar. Geisladiskur þeirra Serena kom út í árslok 2008. Í september 2025 komu út á netinu hljóðrit þeirra Ómskoðun andartaksins sem inniheldur tónverk fjögurra íslenskra tónskálda sem öll voru samin fyrir dúóið

