Krakkaklúbburinn Krummi

lau

24. okt

14:0016:00

Krummi
Listasafn Einars Jónssonar

Innri og ytri veruleiki – hvernig dýr er ég innra með mér?
Verkið Hvíld eftir Einar Jónsson sýnir stórt andlit sem er að hálfu hulið stuðlabergi. Við skoðum verkið vel og vandlega – því meira sem við skoðum, því meira sjáum við. Í kjölfarið búum við til grímur sem hylja hálft andlitið. Grímurnar taka á sig mynd dýra og um leið veltum við fyrir okkur spurningunni: „Ef ég væri dýr innra með mér, hvaða dýr væri ég?“

Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um sýningarnar í Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi. Með Krakkaklúbbnum Krumma vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.

Staðsetning: Listasafn Einars Jónssonar

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17