Jólasveinar sækja að!

sun

29. nóv — 6. jan

10:00—17:00

Safnahúsið

Jólasveinar sækja að í Safnahúsinu!

Jólasveinarnir eru á leið í Safnahúsið við Hverfisgötu! Sunnudaginn 29. nóvember opnar sýningin Jólasveinar sækja að, þar sem kunnuglegir jólasveinar úr myndheimi Brians C. Pilkington stíga út úr bókunum og taka á móti gestum í þrívídd.

Safnahúsið er skemmtilegur áfangastaður fyrir alla fjölskylduna, þar sem margt er hægt að skoða, prófa og uppgötva. Hér geta börnin róið báti, varast tröllin í fjallgarðinum, hjálpað til við að hreinsa hafið, leikið sér með liti og skugga eða brugðið á leik í skuggaleikhúsi. Og nú bætast jólasveinarnir í hópinn og færa íslenskan þjóðsagnaheim enn nær gestum safnsins.

Sýningin Jólasveinar sækja að er unnin af Pilkington Props í samstarfi við Brian C. Pilkington, sem fagnar 50 ára starfsferli sínum. Þar má bæði sjá jólasveinana í þrívídd og upprunalegar myndskreytingar Brians úr bókinni Jólin okkar, þar sem hvert smáatriði segir sína sögu.

Við opnunina leikur Flautukór Skólahljómsveitar Kópavogs íslenska jólatónlist og í kaffihúsi Safnahússins verður hægt að fá sér heitt kakó, kaffi og veitingar.

Verið hjartanlega velkomin í Safnahúsið á aðventunni!

Kaupa miða hér

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17