Tumi

Krakkaklúbburinn Krummi

lau

5. nóv

1416

lau

19. nóv

1416

Listasafnið
Krummi

Fyrir hvað stend ég?
Skoðuð verða verk Zanele Muholi og hvernig aktívismi birtist í verkum háns.
Við veltum fyrir okkur eigin baráttumálum og vinnum sjálfsmynd út frá þeim.

Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um listaverkin í safneign Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi.
Með stofnun krakkaklúbbsins vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)