Leiðsögn sýningarstjóra

sun

4. okt

14:0015:00

Listasafnið

Leiðsögn sýningarstjóra

Anna Jóhannsdóttir, sýningarstjóri leiðir gesti um sýninguna.

Kjarval á Austurlandi

Kjarval á Austurlandi er sýning á landslagsmyndum og mannamyndum frá Austurlandi eftir Jóhannes S. Kjarval (1885-1972). Á Borgarfirði eystri eru æskustöðvar Kjarvals og þangað lagði hann oft leið sína á fullorðinsárum og sótti þá efnivið verka sinna til hins tignarlega landslags á Austurlandi. Verkin, sem flest eru úr fórum Listasafns Íslands og eru meðal annars úr safni Þorvaldar Guðmundssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur, spanna tímabilið frá 1914 til 1961; olíumálverk, vatnslitamyndir, grafíkverk og túskteikningar. Sum verkanna birta þekkjanlega staði, eins og Dyrfjöll og Álfaborg í Borgarfirði eystri, en önnur skírskota til alþýðutrúar og birta ímyndunarauðgi listamannsins.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17