Leiðsögn sýningarstjóra
sun
18. okt
14:00—15:00
Leiðsögn sýningarstjóra
Oleksandra Shevliuga, sýningarstjóri leiðir gesti um sýninguna.
Leiðsögnin fer fram á ensku.
Úkraínskar helgimyndir
Sýning á úkraínskum íkonum frá Þjóðlistasafni Úkraínu í Kænugarði beinir kastljósinu að ríkulegum menningararfi Úkraínu. Verkin spanna sögu kristinnar myndlistar Úkraínu frá lokum 12. aldar til upphafs þeirrar 19. og rekur þróunina frá fyrstu áhrifum býsanskrar menningar og síðar gotneskrar listar og endurreisnar. Barokktíminn bar með sér nýja strauma sem einkenndust af veraldlegu myndefni, ríkulegri litanotkun og íburðamiklum skreytingum.
Sýningin er samstarfsverkefni Listasafns Íslands, Þjóðminjasafns Íslands og Þjóðlistasafns Úkraínu með beinum stuðningi frá Menningarráðuneyti og Utanríkisráðuneyti og miðar að því að efla menningarsamskipti milli landanna.
