Listamannaspjall

sun

1. nóv

14:0015:00

Listasafnið

Listamannaspjall

Jóhannes Dagsson, dósent við myndlistardeild LHÍ ræðir við listamanninn Sigurð Guðjónsson í tengslum við verkið Hula.
Sigurður starfar einnig sem prófessor við myndlistardeild Listaháskóla Íslands. 

Hula – Sigurður Guðjónsson

Verkið Hula (2012) eftir Sigurð Guðjónsson er 60 mínútna samfelld vídeóupptaka með hljóði, heillandi skráning á svifi sandkorna yfir svartar breiður Skeiðarárssands. Sandstraumarnir líða án afláts eins og þunnur vefnaður yfir bylgjótt landið, sefjandi og að því er virðist endalausir í senn. Það er ætlun listamannsins að verkið skapi áhorfandanum andlegt rými til að slökkva á meðvitundinni og leyfa huganum að reika. Hula verður sýnd á stærri skala en áður. Verkið var keypt til safnsins árið 2015.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17