Listamannaspjall

sun

27. sept

14:0015:00

Listasafnið

Listamannaspjall við James Merry

Pari Stave sýningarstjóri ræðir við James Merry um sýninguna Ummyndlingar.
Samtalið fer fram á ensku.

Ummyndlingar - James Merry

James Merry hefur á síðasta áratug skapað grímur sem eru í raun umbreytingarafl, driffjöður í listgjörningum og gátt að breyttri sjálfsmynd. Í brennipunkti sýningarinnar er augnablikið þegar hamskiptin verða – þegar formið og sjálfið flæða saman. Ummyndlingar er fyrsta yfirlitssýningin á verkum Merrys en þar eru rúmlega áttatíu verk.

Grímurnar bera vitni um einstakt handbragð þar sem blandað er saman hefðbundnum aðferðum og öðrum nýstárlegri; útsaumur, málmsmíði, þrívíddarprentun, silfursmíði og gagnvirk, stafræn verk. Úr verður sveigur síkvikra sköpunarverka er veita okkur djúpstæða innsýn í óbilandi hrifningu Merrys á lífríkinu, sem og áhuga hans á fornleifafræði og fornum helgisiðum.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17