
Verið velkomin í safnhús Listasafns Íslands á Menningarnótt
lau
22. ágúst
10:00—22:00
Listasafnið – Safnahúsið – Listasafn Einars Jónssonar
Aðgangur ókeypis
opið 10:00 – 22:00
Listasafnið við Tjörnina
Sýningar, Safnbúðin og Kaktus Espressobar
Echolalia eftir Björk
Á hálfrar aldar ferli hefur Björk Guðmundsdóttir verið óþreytandi við að þenja hefðbundin mörk tónlistarformsins og í stöðugum tilraunum sínum ofið saman listum, náttúru og tækni.
Þrjár innsetningar veita gestum einstakt tækifæri til að upplifa alltumlykjandi verk sem búa yfir kynngimagnaðri hljóðrænni, sjónrænni og tilfinningalegri dýpt. Tvö þeirra eru tregaljóð, samin og útsett af Björk í minningu móður hennar, og hið þriðja er nýtt verk; Nerve Bloom af væntanlegri plötu Bjarkar.
Í Ancestress er tekist á við hringrás lífsins. Í afskekktum dal birtist okkur eins konar helgiganga tónlistarfólks og dansara. Verkið er samið og útsett af Björk fyrir strengjasveit og slagverk. Hið pólýfóníska þriggja-kóra-verk Sorrowful Soil er sálumessa þar sem kanón-legar laglínur veltast um á milli radda. Úr þrjátíu hátölörum berast einstaka raddir meðlima Hamrahlíðarkórsins, undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Verkið er samið og útsett af Björk fyrir níu radda kór.
björk | Listasafn Íslands
Ummyndlingar eftir James Merry
James Merry hefur á síðasta áratug skapað grímur sem eru í raun umbreytingarafl, driffjöður í listgjörningum og gátt að breyttri sjálfsmynd. Í brennipunkti sýningarinnar er augnablikið þegar hamskiptin verða – þegar formið og sjálfið flæða saman. Ummyndlingar er fyrsta yfirlitssýningin á verkum Merrys en þar verða rúmlega áttatíu verk.
Grímurnar bera vitni um einstakt handbragð þar sem blandað er saman hefðbundnum aðferðum og öðrum nýstárlegri; útsaumur, málmsmíði, þrívíddarprentun, silfursmíði og gagnvirk, stafræn verk. Úr verður sveigur síkvikra sköpunarverka er veita okkur djúpstæða innsýn í óbilandi hrifningu Merrys á lífríkinu, sem og áhuga hans á fornleifafræði og fornum helgisiðum.
James Merry | Listasafn Íslands
Safnahúsið við Hverfisgötu
17:00
Leiðsögn í tali og tónum í Safnahúsinu
Stattu og vertu að steini! – þjóðsögur í myndlist
Ragnheiður Vignisdóttir, sýningarstjóri og Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir, sellóleikari leiða gesti um sýninguna Stattu og vertu að steini!
Myndheimur íslenskra þjóðsagna hefur frá upphafi 20. aldar verið óþrjótandi innblástur fyrir íslenska myndlistarmenn. Á sýningunni eru valin verk úr safneign Listasafns Íslands sem með ólíkum hætti fjalla um þjóðsögur og sagnaheiminn þeim tengdum. Verk Ásgríms Jónssonar verða leiðarstef í leiðsögninni þar sem gengið verður í gegnum drauga-, álfa- og tröllasali sýningarinnar með tali og tónum.
20:00 – 21:30
Tangó í Safnahúsinu
Komdu og upplifðu töfra argentínsks tangós á Menningarnótt!
Tangófélagið býður til notalegrar milongu þar sem allir eru velkomnir – hvort sem þú hefur aldrei stigið tangóspor, hefur dansað árum saman eða vilt bara njóta yndislegrar tónlistar.
Kvöldið hefst með stuttri leiðsögn fyrir byrjendur þar sem farið verður yfir helstu grunnspor og hvernig tangó er dansaður. Að því loknu verður opið dansgólf þar sem reyndari dansarar geta notið tónlistarinnar og nýir þátttakendur fengið tækifæri til að prófa sig áfram.
Þetta er frábært tækifæri til að kynnast heillandi danshefð í fallegu umhverfi Safnahússins.
Listasafn Einars Jónssonar
18:00
Menningarkviss Kvisslarans
Spurningakeppni undir berum himni í garði Listasafns Einars Jónssonar.
Íslensk menning og okkar fallega Reykjavík verða þema kvöldsins, þar sem margt það eftirminnilegasta úr sögunni verður rifjað upp í formi skemmtilegra og lifandi spurninga.
Auk þess verða vinningar fyrir bestu liðin! Keppnin er opin öllum og gjaldfrjáls.
21:00
Leiðsögn í tali og tónum í Listasafni Einars Jónssonar
Þóra Sigurbjörnsdóttir og Silja Pálmarsdóttir sérfræðingar hjá Listasafni Íslands ásamt Lilju Hákonardóttur leiða gesti um valin verk á sýningunni Andi og efnisbönd í Listasafni Einars Jónssonar.
Sýningin Andi og efnisbönd gefur djúpa innsýn í sköpunarverk Einars Jónssonar myndhöggvara en sýningin er staðsett í Hnitbjörgum, húsi sem hann teiknaði sjálfur, vann í og bjó. Einnig er hægt að heimsækja höggmyndagarðinn á bak við húsið þar sem 26 bronsafsteypur verka Einars prýða gróskumikinn garð sem er opinn öllum. Í húsinu má einnig skoða einstaka íbúð Einars og Önnu Jónsson þar sem frumlegur stíll og persónulegir gripir varðveitast í upprunalegri mynd.

