
Sýningaropnun
fös
2. okt
17:00—19:00
Verið velkomin á opnun sýninganna Hula (2012) eftir Sigurð Guðjónsson og Kjarval á Austurlandi, í Listasafni Íslands föstudaginn 2. október.
Verkið Hula (2012) eftir Sigurð Guðjónsson er 60 mínútna samfelld vídeóupptaka, heillandi skráning á svifi sandkorna yfir svartar breiður Skeiðarárssands. Sandstraumarnir líða án afláts eins og þunnur vefnaður yfir bylgjótt landið, sefjandi og að því er virðist endalausir í senn. Það er ætlun listamannsins að verkið skapi áhorfandanum andlegt rými til að slökkva á meðvitundinni og leyfa huganum að reika.
Hula verður sýnd á stærri skala en áður. Verkið var keypt til safnsins árið 2015.
Sýningarstjóri: Pari Stave
--
Kjarval á Austurlandi er sýning á landslagsmyndum og mannamyndum frá Austurlandi eftir Jóhannes S. Kjarval (1885-1972). Á Borgarfirði eystri eru æskustöðvar Kjarvals og þangað lagði hann oft leið sína á fullorðinsárum og sótti þá efnivið verka sinna til hins tignarlega landslags á Austurlandi. Verkin, sem flest eru úr fórum Listasafns Íslands, spanna tímabilið frá 1919 til 1960; olíumálverk, vatnslitamyndir, grafíkverk og túskteikningar.
Á uppvaxtarárunum í Borgarfirði eystri mótaðist ímyndunarafl Kjarvals og ljóst er að landslag og menning Austurlands hefur átt drjúgan þátt í tilurð hins sérstæða myndheims Kjarvals.
Andlitsmyndirnar bera vott um afburðafærni í teikningu, sem og ríkt innsæi, næmni og alúð gagnvart viðfangsefninu. Í verkum sem oft túlka veðurbarin andlit, mótuð af harðri lífsbaráttu, kjarnast sambýli manns og náttúru á einstakan hátt. Íslenskt alþýðufólk hafði ekki áður verið myndgert á þennan hátt og er skemmst frá því að segja að með þessum myndum náði Kjarval að fanga hug og hjarta þjóðarinnar.
Sýningarstjóri: Anna Jóhannsdóttir

