
Þúsundblómabreiða eftir Eggert Pétursson
fös
6. nóv
17:00—19:00
Verið velkomin á opnun sýningarinnar Þúsundblómabreiða eftir Eggert Pétursson, í Listasafni Íslands föstudaginn 6. nóvember.
Flóran á norðurslóðum myndar kjarnann í listsköpun Eggerts Péturssonar. Hann sækir í djúpa þekkingu sína á íslenskum plöntum og byggir upp myndheim sem er í senn grasafræðilega nákvæmur og ímyndaður, jarðbundinn og upphafinn. Eggert vinnur út frá stærðarhlutföllum harðgerðra blóma, burkna og mosa, sem vaxa við krefjandi skilyrði norðlægs loftslags, og birtir okkur stórkostlega heima í málverkum sínum. Þá byggir hann yfirborðið upp í lögum svo að myndflöturinn virðist allt að því taka á sig yfirbragð sjálfs landslagsins.
Titill sýningarinnar, Þúsundblómabreiða, vísar til þeirrar blómadýrðar sem einkennir verk Eggerts og tengir þau jafnframt við langa sögu blóma í myndlist og hönnun. Á sýningunni er sjónum einkum beint að málverkum sem Eggert hefur unnið á síðustu fimmtán árum, eftir yfirlitssýningu listamannsins í Listasafni Reykjavíkur árið 2007. Á þessu tímabili má greina vissa áherslubreytingu í átt að andlegri eða dulrænni nálgun sem tengist meðal annars reynslu Eggerts af sýningarstjórn árið 2019, þegar hann setti saman sýningu á blómateikningum og málverkum Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals í Listasafni Reykjavíkur.
Eggert Pétursson (f. 1956) er einn ástsælasti listamaður landsins. Hann fæddist í Reykjavík og býr þar og starfar. Hann nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk framhaldsnámi við Jan van Eyck Academie í Maastricht árið 1981. Þótt málverk hans séu hlutbundin liggja rætur listsköpunar hans í Fluxus-hreyfingunni og hugmyndalist sjöunda og áttunda áratugarins. Verk hans kallast jafnframt á við pósthúmanískar og vistfræðilegar áherslur samtímans.
Sýningin er samstarfsverkefni Listasafns Íslands og Listasafnsins í Turku í Finnlandi.

