Sýningaropnun

lau

12. apríl

14:0017:00

Orla Valdemar Borch (áður eignuð Jóhannes Kjarval), Rauðmaginn, án ártals
LÍ-ÞGIG 2

Þér og þínum er boðið að vera við opnun sýningar­innar Ráðgátan um Rauðmagann og aðrar sögur um eftirlíkingar og falsanir, laugardaginn 12. apríl 2025, kl. 14:00, að Fríkirkjuvegi 7.

Eftirlíkingar listaverka og ýmiss konar falsanir hafa þekkst frá fornu fari og enn koma upp fölsunarmál víða um lönd. Í mörgum söfnum leynast vafasöm verk sem hafa ratað þar inn með margvíslegum hætti og á það einnig við um Listasafn Íslands. Fölsuð verk sem eru í fórum safnsins hafa borist því á ýmsan máta en öll tengjast þau hinu svonefnda stóra málverkafölsunarmáli sem hófst á síðasta tug 20. aldar.

Með þessari sýningu vill Listasafn Íslands stuðla að vitundarvakningu varðandi listaverkafalsanir hér á landi. Á sýningunni eru verk í vörslu safnsins sem rannsóknir hafa staðfest að eru fölsuð, auk falsaðs verks í einkaeigu sem tengdist sýningu í safninu. Einnig eru sýnd ófölsuð verk úr safneign og lánsverk sem tengjast sögum sem hér eru sagðar.

Sýningarstjórar eru Dagný Heiðdal og Ólafur Ingi Jónsson.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga 10–17