Páskaratleikur fyrir alla fjölskylduna

sun

24. mars

13:0016:00

Páskaratleikur fyrir alla fjölskylduna í Safnahúsinu við Hverfisgötu!

Leysið þrautirnar og uppgötvið perlur úr safneign Listasafns Íslands.
Þeir sem ljúka ratleiknum fá svo páskaegg að launum
- á meðan birgðir endast.

Í Safnahúsinu stendur nú yfir sýningin Viðnám - samspil myndlistar og vísinda. Sýningin er á fjórum hæðum þar sem skemmtileg gagnvirkni og listasmiðjur leynast í hverjum krók og kima.

Ókeypis aðgangur fyrir börn og fylgdarmenn þeirra!

Hlökkum til að sjá ykkur!

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17