Safnbúðardagurinn 2026

lau

14. nóv

15:00—17:00

Fjársjóðskistur safnbúða geyma gjarnan útgáfur, hönnun, prent og gripi sem byggja á safneig eða sýningum og eru því forvitnilegar fyrir margra hluta sakir.

Við fögnum árlegum safnbúðadegi í Listasafni Íslands með nýjasta jólapappírnum okkar, sem nú er að þorna í prentsmiðjunni Litóf. Í ár erum við sérstaklega spennt að kynna jólapappír prýddan listaverkum eftir Eggert Pétursson og Nínu Tryggvadóttur.

Útgáfunni fögnum við með pompi og prakt kl. 15.00!

Komið og skoðið vörur með sál og sögu – gjafir sem skipta máli.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17