Síðdegi á safninu

fim

14. nóv

17:0019:00

fim

21. nóv

17:0019:00

Listasafnið

Síðdegi á safninu

Dagskrá sem ætluð er listunnendum og áhugafólki um myndlist.
Sérfræðingar safnsins veita innsýn í ákveðna þætti úr listasögunni í fallegu umhverfi listasafnsins. Innifalið í verði er bók sem tengist viðfangsefninu hverju sinni, léttar veigar og tveir miðar sem gilda í safnhús Listasafns Íslands.
Staðsetning: Fríkirkjuvegur 7
Óskað er eftir skráningu á viðburðina í gegnum mennt@listasafn.is, hámarksfjöldi er 20 manns á hverjum viðburði.
Verð: 9.800 kr. staðgreitt


Innsýn, útsýn – Listasafn Íslands í 140 ár

Í tilefni af 140 ára afmæli Listasafns Íslands er efnt til sýningar á völdum listaverkum úr safneigninni eftir um 100 listamenn frá mismunandi tímabilum listasögunnar. Sýningin er haldin í öllum fjórum sölum safnbyggingarinnar við Fríkirkjuveg og skiptist í fjögur meginþemu: form, manneskjan, samfélag og landslag. Sýningin endurspeglar ekki aðeins það hlutverk Listasafns Íslands að byggja upp safnkost sem endurspeglar strauma og stefnur í listum hverju sinni, heldur einnig mikilvægi safnsins sem varðveislustaðar og lifandi vettvangs skoðanaskipta.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17