Skapandi fjölskylduleiðsögn á Barnamenningarhátíð

fim

20. apríl

14:0015:00

Safnahúsið

Skapandi fjölskylduleiðsögn sýningarstjóra í Safnahúsinu við Hverfisgötu Sumardaginn fyrsta, 20. apríl kl. 14. Verið hjartanlega velkomin á skapandi fjölskylduleiðsögn um sýninguna Viðnám – samspil myndlistar og vísinda í Safnahúsinu við Hverfigötu. Dr. Ásthildur Jónsdóttir sýningarstjóri tekur á móti gestum þar sem þemu sýningarinnar verða tekin fyrir. Leiðsögnin verður unnin í samvinnu við LÁN (listrænt ákall til náttúrunnar) en nemendur úr Fellaskóla, Laugarnesskóla, Langholtsskóla, Austurbæjarskóla, Vogaskóla og Waldorfsskólans Sólstafa sýna á Barnamenningarhátíð verk sem tengjast inntaki sýningarinnar Viðnám í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Verkin tengjast þemu sýningarinnar; hafinu, líffræðilegum fjölbreytileika, fjöllum, himinhvolfinu og ævintýrum. Skólarnir sem taka þátt í sýningunni eru allir þátttökuskólar í vekefninu LÁN (Listrænt ákall til náttúrunnar) þar sem áhersla er lögð á samtal náttúruvísinda og lista. Í hverju skúmaskoti Safnahússins leynast óvæntir töfrar gagnvirkni og myndlist sem að varpar ljósi á málefni sjálfbærni. Gestir fá tækifæri til þess að leyfa sköpunargleðinni að njóta sín. Aðgangseyrir á safnið gildir, ókeypis fyrir börn yngri en 18 ára.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17