
Námskeið fyrir kennara
Sjónarafl - þjálfun í myndlæsi
Námskeið í safnahúsinu
Stattu og vertu að steini!
20. október kl. 14:30 – 16
Fjallað verður um nýtt námsefni í tengslum við þjóðsögurnar, þar sem myndlist, tónlist og sagnaarfurinn fléttast saman. Hagnýt verkefni verða kynnt, sem nýta má á öllum skólastigum.
Þá verður einnig fjallað um myndlæsi og leiðir til þess að nýta samnefnda sýningu í Safnahúsinu sem hluta af kennslunni.
Verð: 6.500 kr. – Bókin fylgir og efni á staðnum.
Örnámskeið
Sjónarafl – þjálfun í myndlæsi
Dagsetningar:
13. ágúst kl. 14 - 16
Staðnámskeið í Safnahúsinu við Hverfisgötu
20. ágúst kl. 14 – 16
Staðnámskeið í Safnahúsinu við Hverfisgötu
Sjónarafl miðar með markvissum hætti að því að tengja kennslu í myndlæsi og listasögu við skólakerfið og auka þekkingu nemenda á menningarsögu og menningararfi þjóðarinnar. Þjálfun í myndlæsi eykur einnig hæfni í tjáningu, virkri hlustun, hugtakaskilningi og gagnrýnni hugsun. Á námskeiðinu fá kennarar kynningu og þjálfun í aðferðum myndlæsis þar sem unnið er markvisst með umræðu- og spurnaraðferð.
Myndlæsisþjálfunin fer fram með því að styðjast við valin verk úr safneign Listasafns Íslands og er fræðsluefnið sjálft unnið sérstaklega með kennara í huga.
Námskeiðsgjald er 6.500 kr. og innifalin í því er kennslubókin Sjónarafl. Greitt er á staðnum.
Kennarar: Ragnheiður Vignisdóttir og Ingibjörg Hannesdóttir
Athugið að takmarkaður fjöldi kemst á námskeiðið og skráning er því nauðsynleg í gegnum netfangið mennt@listasafn.is

