Kona

1951

Jóhannes Jóhannesson 1921-1998

LÍ-1009

Jóhannes Jóhannesson útskrifaðist sem gullsmiður úr Iðnskóla Reykjavíkur árið 1945. Þaðan fór hann í myndlistarnám í Barnes Foundation í Bandaríkjunum 1945–1946. Sökum stríðsins gátu listamenn ekki lengur sótt nám sitt til meginlanda Evrópu og voru þá Bandaríkin eini kosturinn á þeim tíma. Jóhannes var einn af þeim listamönnum sem vildu halda sýningu sem kæmi íslenskri nútímalist á kortið og árið 1947 var haldin fyrsta sýning Septemberhópsins. Þessi sýning var sú fyrsta af fjórum og markaði upphaf framúrstefnunnar í íslenskri myndlist. Árið 1949 fer Jóhannes í nám til Ítalíu og síðar sama ár dvelur hann í París ásamt nokkrum öðrum íslenskum listamönnum. Á þeim tíma var París orðin meginaðsetur geómetrískrar abstraktlistar á heimsvísu og tóku íslensku listamennirnir þessa stefnu með sér heim. Þessi sterku geómetrísku áhrif voru ekki sterk í myndum Jóhannesar fyrr en í byrjun sjötta áratugarins.

  • Ár1951
  • GreinFlokkun LÍ / Mannamyndir, Málaralist / Olíumálverk
  • Stærð100 x 80 x 2.5 cm Stærð með ramma: 102 x 82 x 0 cm
  • EfnisinntakKona, Fyrirsæta, Gluggi
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá
  • EfniÓflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Olíulitur
Höfundarréttur

Jóhannes Jóhannesson - Erfingjar

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listsafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17